Hvernig á að hreinsa olíu bletti
Fylgdu þessum skrefum til að fjarlægja olíubletti hratt og örugglega. Rétt tækni og efni tryggja að bletturinn hverfi alveg og yfirborðið verði hreint og fínt aftur.
Það sem þú þarft:
Háþrýstidælu (4000psi / 300 bar)
Olíu hreinsiefni
spreybrúsa
Skref 1: Undirbúningur
Veldu þurran dag (ekki strax eftir rigningu) svo efnið nái að vinna.
Fjarlægðu laus óhreinindi af svæðinu ef þarf.
Skref 2: Settu upp búnaðinn
- Tengdu háþrýstidæluna og vertu viss um að hún sé tilbúin.
Skref 3: Berðu á hreinsiefnið
Sprautaðu því yfir allan blettinn og a.m.k. 10 cm út fyrir sýnilegt svæði.
Ekki spara efnið – það þarf að liggja vel yfir blettinum.
Endurtaktu þar til efnið hættir að síast strax niður (þýðir að það er búið að vinna sig í gegnum olíuna).
- Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda um hve lengi á að láta liggja á.
Skref 4: Háþrýstiþvottur
Þvoðu svæðið vel með háþrýstidælunni.
Farðu frekar vítt yfir en of þröngt til að missa ekki af neinu.
- Ef einhverjir blettir sitja eftir, berðu á þá meira af efninu, láttu bíða og skolaðu síðan aftur.
Skref 5: Athugun
- Skoðaðu hvort blettir séu enn sjáanlegir. Ef svo er, endurtaktu skref 3, 4 og 5.
Skref 6: Lokameðferð
- Berðu aftur á þunnt lag af olíu hreinsiefninu og láttu liggja til að leysa upp smáagnir djúpt í yfirborðinu