Hvernig á að hreinsa hellulagt svæði

Að halda hellulögðu svæði hreinu lætur það ekki aðeins líta vel út heldur lengir líka endinguna. Hér eru leiðbeiningar sem þú getur fylgt til að gera þetta sjálf/ur á öruggan og árangursríkan hátt.

Hreinar hellur

Það sem þú þarft:

  • Háþrýstidælu

  • Hreinsiefni til að fjarlægja mosa og óhreinindi

  • Efni sem ver steinana og kemur í veg fyrir að mosinn komi aftur

  • Fúgusand til að fylla í milli hellna

  • Blásara eða sóp

  • Snúningsstút (turbo nozzle) og 45° eða 25° á háþrýstiþvottavélina

  • (valfrjálst) Joint stabilizing sealer til að læsa sandinum og vernda hellurnar


Skref 1: Fjarlægja laust rusl

Byrjaðu á að fjarlægja lauf, greinar og laust drasl af svæðinu. Notaðu blásara til að flýta fyrir eða sóp ef þú vilt. Að losna við stærra rusl gerir háþrýstiþvottinn auðveldari og betri.


Skref 2: Berðu á mosahreinsilausn

Berðu hreinsilausn yfir allt svæðið. Hún losar mosann, gróðurinn og óhreinindin þannig að þau verði auðveldari að fjarlægja.
Af hverju þetta skref skiptir máli:

  • Þú getur notað minni þrýsting og þannig varið eldri eða viðkvæmari hellur

  • Hjálpar til við að tryggja að allur mosi og gróður fjarlægist


Skref 3: Fyrsti háþrýstiþvottur (snúningsstútur – turbo nozzle)

Settu snúningsstút á háþrýstidæluna og hreinsaðu allt svæðið.

  • Byrjaðu efst og farðu niður þannig að vatn og óhreinindi flæði í burtu

  • Farðu jafnt yfir allt svæðið og tryggðu að hver einasti blettur sé hreinsaður


Skref 4: Annar háþrýstiþvottur (flatur stútur)

Skiptu yfir í flatan stút 45° eða 25° stút.

  • Farðu aftur yfir svæðið til að fjarlægja smáagnir sem eftir eru

  • Ýttu óhreinindunum að minnsta kosti 1 metra frá svæðinu svo þau renni ekki aftur á það


Skref 5: Henda úrgangi

Safnaðu saman mosan og óhreinindin sem þú varst að hreinsa af hellunum og fargaðu því.


Skref 6: Berðu á verndarefni

Þegar svæðið er orðið alveg hreint og þurrt, berðu á verndarefnið. Það sest ofan á hellunar sem hægir á mosavexti og heldur svæðinu snyrtilegu lengur.


Skref 7: Dreifa fúgusandi

Þegar verndarefnið er þornað, dreifðu fúgusandi jafnt yfir svæðið. Notaðu sóp til að ýta sandinum ofan í allar sprungur milli hellna. Þetta hjálpar til við að koma í veg fyrir að illgresi vaxi aftur á milli þeira og heldur þeim föstum.


Skref 8 (valfrjálst): Joint Stabilizing Sealer – Festir sand og verndar hellur

Ef þú vilt fara skrefinu lengra til að halda svæðinu hreinu og fallegu lengur, getur þú borið á joint stabilizing sealer. Þetta er ekki nauðsynlegt, en það gefur aukna vernd og heldur fúgusandinum stöðugum.

Hvað þetta gerir:

  • Myndar þunnt, gegnsætt varnarlag yfir hellunum

  • Læsir fúgusandinum á sínum stað þannig að hann fjúki ekki burt eða skolast í burtu

  • Hjálpar til við að koma í veg fyrir að mosi og illgresi nái sér á strik aftur

Hvernig á að bera á:

  1. Þegar sandinum hefur verið dreift í allar sprungur, farðu yfir svæðið með mjúkum sóp og fjarlægðu allar lausasandagnir af yfirborðinu.

  2. Berðu sealerinn á með úðatæki eða málningarúllu, þannig að hann þekji jafnt yfir allt svæðið.

  3. Leyfðu efninu að þorna í 24 klukkustundir án þess að gengið sé á svæðið eða að það verði fyrir rigningu.

Shopping cart

0
image/svg+xml